Það var athyglivert að hlusta á Katrínu Jakobsdóttur varaformann Vinstri Grænna fjalla um framtíð velferðar- og atvinnmála á fundi frambjóðenda í Reykjavíkurkjördæmi norður. Leið varaformanns Vinstri grænna var sú að hækka ætti skatta og lækka ætti launin.
Hver er framtíðarsýn stjórnmálamanns sem heldur því fram að helsta bjargráðið í íslenskri pólitík sé að hækka skatta og lækka laun. Hafa launin ekki lækkað nú þegar um þriðjung vegna gengisfalls íslensku krónunnar?
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Jón Baldvin slettir skyrinu |
|
Jón Baldvin Hannibalsson Guðfaðir Samfylkingarinnar á greiðari leið en aðrir á miðopnu Morgunblaðsins. Í dag hvetur Guðfaðirinn landsmenn til þess að kjósa ekki Sjálfstæðisflokkinn í næstu kosningum og vísar til þess að flokkurinn hafi fengið fjárstyrki á árum áður frá Glitni og Landsbankanum. Talandi um siðferði í stjórnmálum þá liggur fyrir að Sjálfstæðismenn hafa gagnrýnt hvað harðast að fyrrum formaður Sjálfstæðisflokksins skyldi hafa samþykkt að tekið yrði við háum styrkjum einkafyrirtækja til flokksins. Ég er sammála þeim sem telja það dómgreindarbrest að hafa samþykkt að taka við þessum háu styrkjum. En það gleymist í umræðunni að það var helst fyrir forgöngu Sjálfstæðismanna að reglur voru settar um fjármál stjórnmálaflokka og ríkisstuðning við þá. Að vísu allt of miklir styrkir af almannafé en það má fjalla um það síðar. |
|
Lesa meira...
|
|
Orð Barack Obama um bankahrunið á Íslandi |
Barack Obama forseti Bandaríkjanna er líklega sá maður sem hvað gerst þekkir til efnahagskreppunar í heiminum og hefur kynnt sér ítarlega ástæður bankahrunsins og hefur auk heldur aðgang að betri upplýsingum en nokkur annar lætur sér ekki til hugar koma að halda því fram að stjórnmálaandstæðingar hans beri ábyrgð á bankahruninu í Bandaríkjunum jafnvel þó það hafi gerst á þeirra vakt eins og margir hafa orðað það hér á landi.
Bandaríkjaforseti bendir á hvað bankahrunið sé alvarlegt og alþjóðlegt vandamál vegna þess hvernig fjármálastofnunum um allan heim var stjórnað undanfarin ár. Bankahrunið á sér langan aðdraganda og það veit Bandaríkjaforseti mæta vel.
|
|
Lesa meira...
|
|
|