|
Jón Magnússon f. 23.mars 1946 á Akranesi. Faðir: Magnús Jónsson, skólastjóri á Akranesi og í Reykjavík f.6.ágúst 1916. For: Jón Finnbogi Bjarnason, trésmiður og lögregluþjónn á Ísafirði og í Vestmannaeyjum, f. 28.febr. 1886, d. 9. júní 1952, og k.h. Margrét María Pálsdóttir, húsfreyja, f. 16. sept. 1884, d. 6. apríl 1922. Móðir: Jónína Sigrún Jónsdóttir, kennari og húsfreyja á Akranesi og í Reykjavík, f. 12. febr. 1918. For: Guðlaugur Hannesson, bóndi á Snældubeinsstöðum í Reykholtsdalshr., Borg., f. 4. ágúst 1877, d. 10.ágúst 1921, og k.h. Sigurbjörg Ívarsdóttir, húsfreyja, f. 21. sept. 1883, d. 6. des 1927. Kjörfor. (Sigrúnar): Jón Ívarsson, kaupfélagsstjóri í Borgarnesi og á Höfn í Hornafirði, síðar alþingismaður, skrifstofustjóri og forstjóri Grænmetisverslunar ríkisins í Reykjavík (móðurbróðir Sigrúnar). f. 1. jan. 1891, d. 3. júní 1982, og k.h. Guðríður Jónsdóttir, húsfreyja, f. 11. sept. 1890, d. 7. feb. 1975. Nám: Stúdent frá M.R. 1967 með II. eink. 5.86 st. Cand juris frá Háskóla Íslands 23. feb. 1974 með I. eink. 197 st. (meðaleink. 11.62). Hdl 23. des. 1974, hrl. 5. maí 1989. Starf: Kennari við Ármúlaskóla í Reykjavík 1967-79. Fulltrúi hjá Benedikt Sveinssyni hrl. frá 1. mars 1974 til 1976. Rak eigin lögfræðistofu í félagi við Sigurð Sigurjónsson hrl. 1976-1985. Eigin lögfræðistofa frá 1985. Fasteignasalan Skeifan frá 1984-1991. Fasteignasalan Húsið frá 1992-1993. |