Jón Magnússon

01.jpg
Æviágrip

Jón Magnússon f. 23.mars 1946 á Akranesi.

Faðir: Magnús Jónsson, skólastjóri á Akranesi og í Reykjavík f.6.ágúst 1916. For: Jón Finnbogi Bjarnason, trésmiður og lögregluþjónn á Ísafirði og í Vestmannaeyjum, f. 28.febr. 1886, d. 9. júní 1952, og k.h. Margrét María Pálsdóttir, húsfreyja, f. 16. sept. 1884, d. 6. apríl 1922.

Móðir: Jónína Sigrún Jónsdóttir, kennari og húsfreyja á Akranesi og í Reykjavík, f. 12. febr. 1918. For: Guðlaugur Hannesson, bóndi á Snældubeinsstöðum í Reykholtsdalshr., Borg., f. 4. ágúst 1877, d. 10.ágúst 1921, og k.h. Sigurbjörg Ívarsdóttir, húsfreyja, f. 21. sept. 1883, d. 6. des 1927. Kjörfor. (Sigrúnar): Jón Ívarsson, kaupfélagsstjóri í Borgarnesi og á Höfn í Hornafirði, síðar alþingismaður, skrifstofustjóri og forstjóri Grænmetisverslunar ríkisins í Reykjavík (móðurbróðir Sigrúnar). f. 1. jan. 1891, d. 3. júní 1982, og k.h. Guðríður Jónsdóttir, húsfreyja, f. 11. sept. 1890, d. 7. feb. 1975.

Nám: Stúdent frá M.R. 1967 með II. eink. 5.86 st. Cand juris frá Háskóla Íslands 23. feb. 1974 með I. eink. 197 st. (meðaleink. 11.62). Hdl 23. des. 1974, hrl. 5. maí 1989.

Starf: Kennari við Ármúlaskóla í Reykjavík 1967-79. Fulltrúi hjá Benedikt Sveinssyni hrl. frá 1. mars 1974 til 1976. Rak eigin lögfræðistofu í félagi við Sigurð Sigurjónsson hrl. 1976-1985. Eigin lögfræðistofa frá 1985. Fasteignasalan Skeifan frá 1984-1991. Fasteignasalan Húsið frá 1992-1993.

 Félags-og trúnaðarstörf:

  • Í stjórn Heimdallar F.U.S., 1963-67, form. 1975-77,
  • Form. Stúdentaráðs Háskóla Íslands 1970-71.
  • Í stjórn Félagsstofnunar stúdenta 1972-74.
  • Í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins frá 1973.
  • Varaþingmaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík 1984-1992
  • Í stjórnarnefnd Veitustofnana í Reykjavík 1974-78.
  • Í stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna (S.U.S.) 1971-75, form. frá 18. sept. 1977 til 1981.
  • Í stjórn Neytendasamtakanna 1978-81. Formaður Neytendasamtakanna 1982 til 1984.
  • Formaður Neytendafélags Höfuðborgarsvæðisins 1991-1996.
  • Varaformaður Neytendasamtakanna frá 1996 til 2000.
  • Í lögfræðilegri stjórnunarnefnd í neytendamálum frá 1992. Formaður nefndarinnar árið 1999.
  • Form. stjórnar Iðnlánasjóðs 1983-1991.
  • Varaformaður Fylkis íþróttafélags árið 1983-85
  • Formaður Nýs Afls þjóðmálasamtaka 2004-2006

 

Ritstörf:

Neytendahandbókin bók um neytendarétt og leiðbeiningar fyrir neytendur 2001. Jákvæð stefna í utanríkismálum, smárit S.U.S. , Reykjavík 1974. Fjöldi greina um stjórnmál, neytendamál og lögfræðileg efni í blöðum og tímaritum.

Fjölskylduhagir:


Sambýliskona, Marta Helgadóttir (f. 26. okt. 1954) bankastarfsmaður, sérfræðingur hjá viðskiptabankasviði Landsbankans. For.: Helgi Brynjólfsson vélstjóri f.3.10.1918 d. 7.2.2004 og k. h. Huld Þorvaldsdóttir f. 17.3.1915 d.22.11.2008. 
 
Stjúpsonur: sonur Mörtu, Arnar Sigurjónsson f. 30. sept. 1982, stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð, nemi í Háskólanum á Bifröst. 
 
Fyrrverandi maki: 20. ágúst 1966, Halldóra Jónasdóttir Rafnar, stúdent frá M.R. 1967, B.A. í ensku og sagnfræði, menntamálafulltrúi V.S.Í., f. 31. maí 1947. Þau skildu 4. okt. 1990, lögsk. 20. feb. 1992. For: Jónas Gunnar Jónasson Rafnar, stúdent frá M.A., hdl. (nr. --). og alþingismaður á Akureyri , bankastjóri Útvegsbanka Íslands í Reykjavík, f. 26. ágúst 1920, og k.h. Aðalheiður Bjarnadóttir Rafnar,hjúkrunarfræðingur og húsfreyja, f. 25. maí 1923. 
 
Synir þeirra:  1) Jónas Friðrik, f. 10. nóv. 1966 í Rvík, stúdent frá V.Í., cand. juris starfsmaður Verslunarráðs Íslands í Reykjavík, hjá Eftirlitsstofnun EFTA í Brussel nú forstjóri Fjármálaeftirlitsins. kvæntur Lilju Dóru Halldórsdóttur f. 4.des.1967 og eiga þau tvö börn Steinunni Dóru f. 10.maí 1990 og Jónas f. 2.apr.1997.

2) Magnús, f. 8. júlí 1980 í Rvík, stúdent frá Verslunarskóla Íslands, nemi í Háskólanum í Reykjavík. 
 
Dóttir: Sigrún Fanný, f. 13. feb. 1985. Móðir Fanný Jónmundsdóttir f.d. 21.4.1945, kaupmaður og leiðbeinandi. Foreldrar: Jónmundur Guðmundsson vélstjóri Akranesi f.2.9.1915 d. 29.1.1988 og Aðalheiður Dagmar Ólafsdóttir f.d. 25.8.1915.  Sambýlismaður Sigrúnar er Bjarni Þór Jónsson f. 20.okt. 1982 og eiga þau einn son Róbert Inga f. 15.feb.2005.