Jón Magnússon

01.jpg
Gæfuspor stigið með aðildinni að Atlantshafsbandalaginu.
Í dag eru 60 ár liðin frá því að Alþingi samþykkti aðild að Atlantshafsbandalaginu. Með því skipuðum við okkur í hóp vestrænna lýðræðisþjóða og tókum afstöðu gegn ógnarstjórnum kommúnista sem þá ógnuðu frelsi og öryggi fólks og þjóða í Evrópu.  Fáir fjölþjóðasamningar hafa haft jafn mikilvæg og jákvæð áhrif á íslenskt samfélag og aðildin að NATO.

Fyrir 60 árum þegar Alþingi ræddi aðild að NATO efndu kommúnistar til óspekta á Austurvelli og aðfarar að lýðræðislega kjörnum fulltrúum í því skyni að reyna að koma í veg fyrir að Alþingi samþykkti aðild að NATO sem betur fer mistókst sú aðför. Hefði hún tekist er hætt við að staða Íslands hefði orðið önnur og verri.

Lesa meira...
 
Lánastofnun litla kapítalistans líður undir lok
Kaupmenn við Laugaveginn stóðu fyrir stofnun Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis á sínum tíma. Markmiðið var að sparisjóðurinn þeirra gæti verið lánveitandi og bakhjarl smáatvinnurekenda og einyrkja í atvinnurekstri.  Í tímans rás gleymdu stjórnendur SPRON þessu markmiði og breyttu sér í fjárfestingabanka sem veðjaði á lottómarkaðnum.

Hefðu stjórnendur SPRON gætt þess að vinna í samræmi við upphafleg markmið væri SPRON öflugasta bankastofnunin í dag.

Á sínum tíma vildu framsýnir menn steypa lánasjóðum atvinnuveganna saman í einn banka til að greiða fyrir útlánum og fjárhagslegum stuðningi við atvinnufyrirtæki í landinu og sprotafyrirtæki. Fiskveiðisjóður, Iðnlánasjóður og Iðnþróunarsjóður mynduðu Fjárfestingabanka atvinnulífsins. Sá fjárfestingabanki átti að vera öflugur bakhjarl til eflingar íslenskra atvinnufyrirtækja.
Lesa meira...
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 3 af 22