Jón Magnússon

01.jpg
Sir Salman
Skáldið Salman Rushdie skrifaði bókina “Söngvar Satans” 1989. Í bókinni er geðfatlaður maður látinn spyrja spurninga í draumi. Titill bókarinnar vísar til að Múhameð spámaður Allah gaf fylgjendum sínum leyfi til að dýrka heiðin goð. Þegar trúbræður hans mótmæltu og sögðu það andstætt öllu sem hann hefði áður sagt, hélt Múhameð því fram að Satan hlyti að hafa hvíslað þessu að honum dulbúinn sem Gabríel erkiengill. Söguhetja Rushdies spyr hvort fleiri hlutar Kóransins hafi orðið til vegna rangtúlkana.  Ekki ný hugsun og umræða í Íslamska heiminum en afar viðkvæm. Hvað er þá frá Gabríel og hvað kann Satan að hafa sagt dulbúinn. Því er neitað í Íslam að Satan hafi haft þessi áhrif. Í þætti 22.51 í Kóraninum er brugðist við þessum þanka og á það bent hvernig vélar Satans séu en Allah sjái við þeim öllum. Miðað við það er þá goðgá að spyrja um eða fjalla um söngva Satans? 
Lesa meira...
 
Ritskoðun alræðishyggjunar
Vinstri græn héldu glæsilegt fjölmennt landsþing um síðustu helgi. Langfjölmennasta landsþing sem stjórnmálasamtökin hafa haldið. Þannig sögðu fjölmiðlar frá. Óneitanlega sérkennilegt að bera saman umfjöllun sömu fjölmiðla af landsþingi Frjálslynda flokksins sem haldið var fyrir rúmum mánuði. Á landsþingi Frjálslynda flokksins voru helmingi fleiri en hjá Vinstri grænum en enginn fjölmiðill talaði um að þar hefði verið glæsilegt fjölmennt landsþing. Svona er nú kjörum manna og stjórnmálaflokka misskipt.  Formaður vinstri grænna gerði grein fyrir helstu áherslum flokksins. Athyglivert er að fyrir utan nokkrar almennar hugmyndir um græn sjónarmið sem byggjast flest á því að engu verði raskað í náttúrunni nema helst grænum svæðum á höfuðborgarsvæðinuog engu öðru breytt þá hefur flokkurinn fengið á sig mun ákveðnari vinstri svip en áður. Stefnumótun  á landsþinginu og nýjustu skoðanakannanir bendi til þess að svokölluð sameining vinstri manna í Samfylkingunni hafi mistekist. Tveir álíka stórir vinstri flokkar gætu orðið til við næstu kosningar. 
Lesa meira...
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 10 af 22