Jón Magnússon

01.jpg
Svarta línan
Lengi hefur það verið áhugamál margra að gera góða varanlega akvegi um hálendi landsins. Fyrir nokkrum árum setti Trausti Valsson arkitekt fram skemmtilegar hugmyndir um tengingu landshluta yfir hálendið. Á bak við  hugmyndir um uppbyggða vegi liggja óskir um að stytta vegalengdir milli landshluta og auðvelda fólki að skoða landið sitt.  Hver sá sem farið hefur yfir Kjöl svo ekki sé talað um Sprengisand á góðviðrisdegi að sumri þekkir hvað það er að hossast í endalausum rykmekki þar sem ekki er hægt að aka nema 100 metra fram að næstu beygju. Ferðalangur sem hefur ferðast við slíkar aðstæður veit hvílík óþrif það eru hafa hálendisvegina að hluta til niðurgrafna troðninga. Nokkrir áhrifamenn í landinu hafa  nú bundist samtökum um að gæta þess að þannig skuli það vera og enginn “ljótur” beinn vegur með varanlegu slitlagi lagður yfir Kjöl eða Sprengisand. Áfram skulu menn hossast á niðurgröfnu vegunum í sand- og moldaryki.  

Í ritstjórnargrein í Morgunblaðinu segir að mikilvægt sé að koma í veg fyrir að hótel verði byggt undir Langjökli og verði uppbyggðir vegir með varanlegu slitlagi lagðir um hálendi Íslands sé búið að eyðileggja þetta óbyggðasvæði. Í sama leiðara er kallað eftir afstöðu umhverfisráðherra og nokkrum dögum síðar birtir blaðið viðtal við nýan umhverfisráðherra sem tekur undir með leiðara blaðsins. Umhverfisráðherra segir.  “Skoðun mín hefur lengi verið sú að uppbyggðir vegir eigi ekki heima á miðhálendi Íslands” Umhverfisráðherra vill troðninga á hálendinu.
Lesa meira...
 
Skilyrðislaus uppgjöf eða nýir tímar?
Jón Baldvin Hannibalsson segir í grein sem hann nefnir “Skilyrðislaus uppgjöf” að undirritaður hafi loks ratað heim í Sjálfstæðisflokkinn og gleymd sé öll gagnrýni á Sjálfstæðisflokkinn út af gjafakvótanum og annarri kerfislægri spillingu og öðru sem hann rekur með þeim hætti sem aflaði honum slíks fylgis sem formanns Alþýðuflokksins að hann fann þann kost vænstan að Alþýðuflokkurinn yrði lagður í dvala og eingöngu tekin úr múmíuhulstrinu þegar fyrrum foringinn þarf að tala.  

Það er rétt að ég hef verið gagnrýninn á Sjálfstæðisflokkinn þau 18 ár sem ég hef verið utan hans. Ég taldi óráð að krónan yrði látin fljóta og nauðsyn að marka aðra peningamálastefnu. Ég var og er á móti gjafakvótakerfinu og tel forgangsatriði að vextir og lánakjör í landinu verði með sama hætti og í nágrannalöndum okkar svo nokkuð sé talið. Jón Baldvin veltir fyrir sér hvort Jón Magnússon sé að umbuna “íhaldinu” eða hvort aumingjagæska hans sé komin á svo hátt stig að hann telj eðlilegt að rétta fram sáttfúsa hjálparhönd.  Til skýringar fyrir nafna minn þá er hvorki um umbun eða aumingjagæsku að ræða. 
Lesa meira...
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 9 af 22