Hvernig mundi þjóðfélagi farnast ef allt væri verðtryggt? Kæmi til þess að verð á húsnæði hækkaði mundi verð á brauði hækka í sama mæli sem og laun, lán og allt annað. Við slíkar aðstæður væri hægt að færa verð hluta upp og niður en það mundi leiða til þess að allt breyttist þá til samræmis.
Mistök Hammúrabí konungs og Díócletian Rómarkeisara.
Þess eru þó mörg dæmi í sögunni að stjórnendum hafi dottið sambærilegir hlutir í hug. Hammúrabí konungur í Babýlon 1750 fyrir Krist reyndi að binda verð allra hluta þannig að sama hlutfall væri alltaf fyrir hendi. Það fyrirkomulag leiddi til algjörrar stöðnunar. Um 300 stóð Diocletian Rómarkeisari frammi fyrir þeim vanda að verðlag hækkaði mikið vegna þess að peningamagn í umferð hafði aukist til muna með tilheyrandi gengisfellingu og hann ákvað verð allra söluhluta og hluti til daglegrar notkunar. Engin innbyrðis breyting mátti verða að viðlagðri dauðarefsingu. |
|
Lesa meira...
|
|
|
Var framið dómsmorð í Írak? |
Dabbi dópari var handtekinn fyrir að hafa flutt til landsins amfetamín og selt megnið af því. Saksóknari ákærði Dabba. Dabbi var sýknaður á þeirri forsendu að athæfi hans var ekki ólögmætt þegar það var framið. Athæfi Dabba hafði verið ólögmætt áður en þær reglur höfðu fallið niður. Stjórnvöld settu aftur reglur en það skipti ekki máli fyrir Dabba. Á þeim tíma sem hann hafði umrætt samneyti við fíkniefnið var það ekki refsivert. Hvarvetna í þróuðum réttarríkjum er einungis refsað fyrir þau brot sem eru refsiverð samkvæmt lögum á þeim tíma þegar þau eru framin. Ekki er hægt að dæma mann sekan fyrir athæfi sem gert er ólögmætt síðar.
Robert Taft öldungardeildarþingmaður í Bandaríkjunum um miðja síðustu öld var einn áhrifamesti hugmyndafræðingur Repúblikanaflokksins og væntanlegt forsetaefni. John F. Kennedy fyrrum forseti Bandaríkjanna sagði um Robert Taft í bók sinni “Profiles of Courage” að þessi maður hafi staðið við skoðanir sínar og þegar spurning var um þau grundvallarsjónarmið þá hafi hvorki möguleikinn á að komast í Hvíta húsið eða til annarra mannvirðinga komið í veg fyrir að hann segði skoðun sína. Stjórnarskrá Bandaríkjanna var Taft heilög og þegar stjórnarskráin bannaði að síðari tíma lög gerðu athæfi saknæm þá taldi Taft að þau sjónarmið hlytu að gilda í öllum tilvikum. |
|
Lesa meira...
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 8 af 22 |