Winston Churchill er einn merkasti stjórnmálamaður Breta. Frá árinu 1933 þangað til síðari heimstyrjöldin braust út var Winston Churchill ekki leyft að tala í breskt útvarp, en útvarpið var á þeim tíma einokunarfyrirtæki ríkisins stjórnað af BBC. Churchill var framámaður í enskum stjórnmálum. Hann var þingmaður á breska þinginu þennan tíma og fyrrverandi ráðherra. Churchill var beittur þöggun. Aðrir fjölmiðlar voru ekki undir hælnum á ríkinu, en BBC bar þvílíkan ægishjálm í fjölmiðlun í landinu, að Churchill var nánast útskúfaður. Ástæða þessarar útskúfunar úr fjölmiðlum var sú að Churchill var framsýnn og sagði þann sannleika sem ráðamenn þjóðarinnar vildu ekki heyra á þeim tíma. Churchill varaði þjóð sína við uppgangi nasista í Þýskalandi og notaði öll tækifæri til að fá landa sína til að mæta þeirri ógn sem lýðræðisþjóðunum stafaði af Þýskalandi Hitlers. Þetta var sá boðskapur sem ekki mátti heyrast í breskum fjölmiðlum frá Winston Churchill næstu 6 ár áður en heimstyrjöldin síðari braust út. Í ljós kom að hann hafði rétt fyrir sér. Þetta sýnir að jafnvel í þróuðu lýðræðisríki geta einstaklingar lent í því að vera útskúfaðir úr fjölmiðlum vegna skoðana sinna og/eða vegna þess að þeir eru eigendum fjölmiðlana eða ráðandi stjórnmálaöflum í landinu ekki þóknanlegir. Jafnvel þó þeir séu mikils metnir og eigi eða hafi átt merkilega stjórnmálasögu.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Það er svo bágt að standa í stað |
Fyrir 12 árum var hleypt af byssuskoti í Jerúsalem. Það var skotið til að drepa. Ekki óvenjulegt í þeirri borg. Það sem var óvenjulegra var að sá sem varð fyrir skotinu og átti að verða fyrir því var valdamesti maður Ísraelsríkis. Forsætisráðherra Ísraels Yitzhak Rabin var skotin í bakið af öfgafullum Gyðingi og hann drepinn. Morðinginn skaut úr byssu sinni ákveðinn í því að drepa forsætisráðherrann vegna þess að hann var dauðasekur að hans mati. Yitzhak Rabin hafði unnið sér það til óhelgi að hafa staðið að friðarsamkomulagi við Yassir Arafat. Ætlunin var að stofna með samningum milli Ísrael og Palestínumanna sjálfstætt ríki Palestínumanna á Vesturbakkanum svo kallaða og á Gasa svæðinu. Sú fyrirætlun var dauðasök í huga morðingja Rabin. Morðingi forsætisráðherrans Yigal Amir hefur aldrei iðrast morðsins enda telur hann að með Oslóarsamningunum hafi Rabin ætlað að láta Palestínumönnum eftir landið sem Guð gaf Gyðingum.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 7 af 22 |